Tveir starfsmenn Pólsins útskrifast sem rafvirkjar

Við brautskráningu 23. maí útskrifuðust fyrstu rafvirkjarnir frá Menntaskólanum á Ísafirði, fjórir alls.

Tvær þeirra eru starfsmenn Pólsins ehf í starfsnámi, þær eru Tinna Dögg Þorbergsdóttir (th) og Berglind Björk Sveinsdóttir (tv) sem hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur og var semidúx skólans með meðaleinkunnina 8,77.

Valur Sæþór Valgeirsson öflugasti og reynslu mesti rafvirki okkar er á myndinni nýbúinn að taka við gullmerki.

Félags Íslenskra rafvirkja, með góða 30 ára starfsreynslu.

Við óskum þeim til hamingju með þennann flotta áfanga.